Viðskipti
| mbl
| 25.5.2009
| 11:01
SPM fær áframhaldandi greiðslustöðvun
Sparisjóður Mýrasýslu fékk í dag heimild til áframhaldandi greiðslustöðvunar en þann 27. apríl fékk sjóðurinn greiðslustöðvun í þrjár vikur. Í dag var heimildin framlengd til 30. júní. Tilgangur greiðslustöðvunarinnar er
undirbúa nauðasamninga við lánadrottna á grundvelli samkomulags við helstu lánadrottna sjóðsins.
Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds hæstaréttarlögmaður. Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf., að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















