Viðskipti
| mbl
| 26.5.2009
| 15:36
Bandarískir neytendur sjá sólina
Væntingarvísitala bandarískra neytenda hækkaði í 54,9 stig í maí upp úr 40,8 stigum í apríl á sama tíma og atvinnumöguleikar jukust.
Um er að ræða fjórðu mestu hækkun á væntingarvísitölunni í sögunni og hefur hún ekki verið hærri í átta mánuði. Hagfræðingar höfðu áður búist við að vísitalan myndi mælast 43 stig.
„Væntingar eru um að aðstæður í viðskiptalífinu batni og tekjur aukist á næstu mánuðum,“ segir Lynn Franco, framkvæmdastjóri hjá rannsóknarmiðstöð neytenda hjá Viðskiptaráði Bandaríkjanna í samtali við MarketWatch. Franco segir að almenningur virðist ekki vera jafn svartsýnn og áður og að hið versta sé að baki í augum bandarískra neytenda, þótt væntingar séu enn lágar í sögulegu samhengi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















