Engin viðskipti á millibankamarkaði
Engin viðskipti hafa verið á millibankamarkaði í morgun og stendur gengisvísitalan í 230,30 stigum. Bandaríkjadalur er 127,58 krónur, pundið 202,05 krónur, danska krónan er 23,792 krónur og evran 177,15 krónur. Á aflandsmarkaði eru viðskipti með evruna á rúmar 200 krónur, ef miðað er við miðlunarkerfi Reuters, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
Til samanburðar var evran hér á landi á 169 krónur í upphafi árs og Bandaríkjadalur á 121 krónur og er krónan því verðminni en þá var. Hún er búin að lækka mikið síðan hún náði sínu hæsta gildi á árinu um miðjan mars en þá var evran í tæplega 143 krónum og dollarinn í 112 krónum, að því er fram kom í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka í gær.
Gengi krónunnar hefur lækkað þrátt fyrir hert gjaldeyrishöft, afgang á vöruskiptajöfnuði og kaup Seðlabankans á krónum fyrir erlendan gjaldeyri. Ástæður lækkunarinnar endurspegla útglæði gjaldeyris vegna vaxtagreiðsla til erlendra aðila, hökt í að útflutningstekjur skili sér til landsins að fullu og breytingu í greiðslufrestum innlendra aðila gagnvart erlendum.



















