Spá tveggja prósentustiga stýrivaxtalækkun
Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um tvö prósentustig hinn 4. júní næstkomandi á næsta vaxtaákvörðunardegi nefndarinnar.
Ef það gengur eftir lækka stýrivextir úr 13,0% í 11,0%. Slík lækkun verður að teljast umtalsverð þó ýmsir kunni að telja hana hóflega miðað við núverandi aðstæður í efnahagslífinu, eins og segir í morgunkorni bankans.
Sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sagði viku eftir síðustu vaxtaákvörðun í þessum mánuði að AGS telji ekki forsendur fyrir frekari lækkun stýrivaxta að sinni. Hefur þetta dregið nokkuð úr væntingum um umtalsverða stýrivaxtalækkun núna í júní.
Peningastefnunefnd lækkaði stýrivexti bankans um 2,5 prósentur á síðasta vaxtaákvörðunardegi bankans 7. maí og voru tveir af fimm nefndarmönnum á því að lækka vexti meira eða um 3,0 prósentur. Mótar það væntingar um lækkun nú í júní auk þess að nefndin lýsti því yfir við síðustu lækkun að hún vænti þess að stýrivextir yrðu lækkaðir umtalsvert til viðbótar núna í júní.



















