Starfsmenn Sjóvár boðaðir á fund
Unnið er að því að stofna sér félag um tryggingarekstur Sjóvár en að sögn Árna Tómassonar, formanns skilanefndar Glitnis, standa vonir til þess að hægt verði að ljúka því starfi innan tveggja daga. Í samtali við mbl.is sagði Árni ekki geta upplýst frekar um málið að svo stöddu. Starfsmenn Sjóvár hafa verið boðaðir á starfsmannafund í dag klukkan 16.
Um miðjan mars var gengið frá því að allar íslenskar eignir Milestone, sem áður átti Sjóvá, voru settar undir Sjóvá. Um er að ræða eignir fjárfestingarbankans Askar Capital og fjármálafyrirtækisins Avant. Yfirráð yfir Sjóvá færðust síðan undir skilanefnd Glitnis, en bankinn var stærsti lánardrottinn Milestone.
Á vef DV kemur fram að Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, muni í kjölfar uppskiptingar félagsins láta af störfum sem forstjóri Sjóvár.
Sjóvá uppfyllir sem stendur ekki lágmarkskröfur um gjaldþol tryggingafélaga, en það er nauðsynlegt magn af eigið fé sem slík félög þurfa til þess að mega starfa samkvæmt lögum. Vegna þessarar stöðu hefur Sjóvá, ásamt Verði, verið undir sértæku eftirliti Fjármálaeftirlitsins (FME) frá bankahruni.
Sjóvá fjárfesti mikið í erlendum fasteignaverkefnum víðsvegar um heiminn auk þess sem eigandi Sjóvár, Milestone, færði eignir inn í tryggingafélagið til að jafna út viðskiptaskuld. Stjórnendur Sjóvár hafa ekki viljað upplýsa Morgunblaðið um hvernig sú viðskiptaskuld skapaðist, en hún stóð í 7,3 milljörðum króna í árslok 2006. Ráðist var í fjárfestingarnar í krafti þess að staða bótasjóðs Sjóvár var afar sterk, að því er fram kom í Morgunblaðinu fyrr í mánuðinum.
Slæma stöðu Sjóvár má rekja til ofangreindra fjárfestinga. Unnið er að því að aðskilja fjárfestingahlutann frá vátryggingarhlutanum.Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, sagði í samtali við Morgunblaðið þann 14. maí sl. að Sjóvá vantaði að minnsta kosti tíu milljarða króna innspýtingu eigna eða fjármagns til að mega starfa áfram.
Eigandi Sjóvár fyrir hrun var fjárfestingafélagið Milestone. Það keypti sig inn í Sjóvá árið 2005 og eignaðist það að fullu árið eftir. Milestone, sem var í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona, réð Þór Sigfússon sem forstjóra félagsins.



















