Viðskipti
| Morgunblaðið
| 28.5.2009
| 7:07
Vilja kaupa Vodafone
Nýja Landsbankanum hafa borist fjölmargar fyrirspurnir vegna Vodafone á Íslandi sem verður innan skamms undir stjórn bankans á grundvelli nauðasamnings Teymis, samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Teymi er móðurfélag níu fyrirtækja, þar á meðal Vodafone.
Á grundvelli nauðasamnings félagsins mun Landsbankinn, sem var stærsti kröfuhafi þess, fara með 57,2% eignarhlut.
Það ræðst á fimmtudaginn í næstu viku á fundi með lánardrottnum Teymis hvort nauðasamningur félagsins fær brautargengi eða ekki. Ekki fékkst uppgefið í gær hjá Landsbankanum hvaða fyrirtæki það væru sem lýst hefðu yfir áhuga á Vodafone.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















