Viðskipti
| mbl
| 29.5.2009
| 8:05
Norðmenn til fyrirmyndar í fjármálum
Norðmenn eru fyrirmyndarþjóð í fjármálum. Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest lánshæfiseinkunn norska ríkisins, AAA, og útlitið er stöðugt.
Að sögn S&P er grundvöllur þessarar einkunnar miklar tekjur, sem norska ríkið hefur af vinnslu olíu og gass í Norðursjó. Þá bendir fyrirtækið einnig á, að norsk stjórnvöld reyna að leggja grunn að hagvexti og berjast gegn atvinnuleysi með ýmsum aðgerðum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















