Sparisjóðsstjóraskipti í Keflavík

Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, lét formlega af störfum um mánaðamótin. Við starfinu tók Angantýr V. Jónasson sem hefur síðustu misseri gengt starfi svæðisstjóra Sparisjóðsins í Keflavík á Vestfjörðum.

Tilkynnt var um þessa breytingu á aðalfundi Sparisjóðsins í apríl. Sparisjóðurinn í Keflavík og Sparisjóður Vestfirðinga sameinuðust í árslok 2007 og lét Angantýr þá af störfum sem sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Vestfirðinga og tók við starfi svæðisstjóra.

Geirmundur mun starfa áfram hjá Sparsjóðnum næstuvikur, samhliða nýjum Sparisjóðsstjóra. Hann hefur starfað samfleytt hjá Sparisjóðnum í Keflavík í 44 ár, eða frá árinu 1965.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK