Gagnrýnir seðlabanka
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur brugðið út af vananum og gagnrýnt harkalega seðlabanka Bandaríkjanna, Englandsbanka og evrópska seðlabankann. Þykir þetta þeim mun athyglisverðara sem þýskur kanslari á í hlut, en þeir hafa ekki lagt í vana sinn að efast um aðgerðir seðlabanka heimsins.
Merkel sagði á ráðstefnu í Berlín í Þýskalandi í fyrradag, að hún væri mjög efins um þær aðgerðir sem seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki sérstaklega hafa gripið til. Þá hafi evrópski seðlabankinn að hennar mati beygt sig of mikið undir alþjóðlegan þrýsting um að taka þátt í því sem hinir bankarnir hafi gert. „Við verðum að snúa aftur til sjálfstæðrar og skynsamlegrar peningamálastefnu, því að öðrum kosti er hætt við því að eftir 10 ár verðum við aftur komin í þá stöðu sem við erum í í dag,“ sagði hún á ráðstefnunni.
Í frétt í Financial Times segir að sú staðreynd að Merkel hafi leyft sér að brjóta þá grundvallarreglu þýskra stjórnmála, að gagnrýna ekki stefnu seðlabanka, og ganga þar með gegn sjálfstæði þeirra, þyki benda til þess að hún og ríkisstjórn hennar hafi í raun miklar áhyggjur af aðgerðum evrópska seðlabankans.
Það sem Merkel er óánægð með í starfsemi seðlabankanna er hve þeir hafa verið viljugir að dæla fjármagni í miklum mæli inn á fjármálamarkaðinn. Verðbólguáhrifin af því geti orðið gríðarleg.



















