Kröfuhafar eignast Teymi
Kröfuhafar Teymis samþykktu á fundi sínum í dag, að breyta hluta af kröfum sínum í hlutafé í Teymi. Samkvæmt frumvarpi til nauðasamnings sem borið var undir atkvæði á fundinum munu kröfuhafar með þessu eignast félagið ásamt dótturfélögum þess að fullu.
Samkvæmt upplýsingum frá Teymi greiddu allir fulltrúar kröfuhafa atkvæði með nauðasamningnum nema Líftryggingafélag Íslands hf., sem er dótturfélag Exista, en fulltrúar þess félags sátu hjá í atkvæðagreiðslunni.
Stærstu hluthafar Teymis verða nú Nýi Landsbankinn með 57% hlut, eigendur skuldabréfaflokka með 33%, Straumur 8% og Íslandsbanki 2%. Samkvæmt þessu verður íslenska ríkið stærsti eigandi símafélagsins Vodafone og stór hluthafi í Tali.
Fyrr í dag samþykktu kröfuhafar Kögunar ehf., dótturfélags Teymis, einróma frjálsan nauðasamning fyrir félagið. Samningurinn felur í sér að kröfum á hendur Kögun verður umbreytt í hlutafé í Teymi.
Teymi mun nú óska formlegrar staðfestingar Héraðsdóms Reykjavíkur líkt og lög gera ráð fyrir. Í kjölfarið verður boðað til hluthafafundar þar sem hið nýja hlutafé verður staðfest og ný stjórn kosin fyrir félagið. Gert er ráð fyrir að nýir eigendur taki formlega við félaginu eigi síðar en í ágúst næstkomandi.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í aprílmánuði á beiðni
Teymis um heimild til að leita nauðasamnings við lánardrottna sína.
Teymi á og rekur m.a. fjarskiptafyrirtækin Vodafone og Tal og
upplýsingatæknifyrirtækin Kögun, Skýrr og EJS. Samanlagðar skuldir
Teymis og dótturfélaga námu samtals 42,4 milljörðum króna, samkvæmt
yfirliti sem kynnt var í apríl.



















