Viðskipti
| mbl
| 5.6.2009
| 9:19
Hækkanir í Evrópu
Flestar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hækkuðu við opnun markaða í morgun. Það voru helst vísitölur á Norðurlöndunum sem hækkuðu ekki. Hlutabréf námufyrirtækja hækkuðu nokkuð í Evrópu sem og olíuvinnslufyrirtæki og bankar. Hlutabréf hækkuðu einnig almennt í Asíu.
Ákvörðun ensk-ástralska námufélagsins Rio Tinto, móðurfélags Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík, um að hætta við samning við kínverska álfélagið Chinalco og gera þess í stað samstarfssamning við BHP Billiton, helsta keppinaut sinn, þótti hafa jákvæð áhrif á mörkuðum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















