Viðskipti
| mbl
| 8.6.2009
| 14:12
Hlutabréf lækka á Wall Street
Hlutabréf lækkuðu almennt í verði á Wall Street í Noew York við opnun markaða í dag. Helstu hlutabréfavísitölur, Dow Jones, Nasdaq og S&P, lækkuðu um liðlega 1%. Bakslag kom því í markaðinn því hlutabréf hafa almennt hækkað frá því í marsmánuði síðastliðnum.
Segir í erlendum vefmiðlum að óvissa þykir nokkur á hlutabréfamörkuðum, en von er á ýmsum skýrslum um stöðu efnahagsmála vestanhafs síðar í þessari viku. Þá segir að fjárfestar hafi áhyggjur af því þeim upplýsingum sem fram komu í síðustu viku um að atvinnuleysi í Bandaríkjunum mælist nú 9,4% og hefur ekki mælst meira í 26 ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















