Viðskipti
| mbl
| 8.6.2009
| 10:44
Lækka einkunnir Írlands
Lánshæfismatsfyrirtækið S&P hefur lækkað lánshæfiseinkunnir írska ríkisins í annað skiptið á þremur mánuðum. Ástæðan er rakin til þeirra fjármuna sem ríkissjóður hefur lagt fram til að koma í veg fyrir hrun bankakerfisins.
Lánshæfiseinkunnin lækkar úr AA+ í AA með neikvæðum horfum. Segir í frétt Bloomberg-fréttastofunnar að þetta bendi til þess að S&P telji meiri líkur en minni að einkunnir Írlandi muni væntanlega lækka enn frekar. Einkunn Írlands var lækkuð úr AAA í AA+ í marsmánuði síðastliðnum, en AAA-einkunnina hefur landið haft frá því í október 2001.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















