Viðskipti
| mbl
| 8.6.2009
| 15:58
Lítil hlutabréfaviðskipti
Viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni á Íslandi í dag námu einungis tæplega 5 milljónum króna. Mest viðskipti voru með hlutabréf Össurar, eða fyrir um 3,4 milljónir. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,8% og er 730 stig. Bréf Össurar lækkuðu um 0,5% en bréf Marels hækkuðu hins vegar um 1,3%.
Viðskipti með skuldabréf voru öllu meiri í kauphöllinni á Íslandi í dag en viðskipti með hlutabréf, eða fyrir rúmlega 12 milljarða króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















