Viðskipti
| mbl
| 9.6.2009
| 13:19
Atlantic Petroleum framlengir
Fyrsta skrefið í endurfjármögnun færeyska olíuleitarfyrirtækisins Atlantic Petroleum er lokið. Gjalddagar á svonefndu brúarláni fyrirtækisins 31. júlí og 31. desember næstkomandi hafa verið framlengdir til 31. desebmer 2010 eða fyrr.
Endanlegur gjalddagi á láni Atlantic petroleum mun ráðast fyrirhuguðu hlutafjárútboði fyfirtæksins og/eða lánafyrirgreiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Atlantic Petroleum, en fyrirtækið er skráð í Kauphöllinni á Íslandi.
Haft er eftir Wilhelm Petersen, forstjóra Atlantic Petroleum, í tilkynningu fryrirtækisins, að hann sé mjög ánægður með þá framlenginu á gjalddögum á lánum fyrirtækisins sem veittar hafi verið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















