Viðskipti
| mbl
| 9.6.2009
| 12:46
Nauðasamningur Eglu samþykktur
Kröfuhafar Eglu hf. samþykktu á fundi í morgun frumvarp til nauðasamnings fyrir félagið. Í tilkynningu frá Eglu segir að í kjölfarið muni félagið óska staðfestingar samningsins af Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Héraðsdómur féllst í aprílmánuði síðastliðnum á beiðni Eglu um að leita nauðasamninga við lánardrottna sína. Egla er í eigu Kjalars, sem er í eigu Ólafs Ólafssonar, sem oftast er kenndur við Samskip. Hollenskt dótturfélag Eglu var annar stærsti eigandi Kaupþings banka fyrir fall hans með tæplega 10% eignarhlut.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















