Kröfuhafar Exista vilja greiðslustöðvun
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Samkomulag hefur náðst á milli kröfuhafa Exista um að félagið verði sett í greiðslustöðvun á næstu vikum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Kröfuhafarnir hafa þegar komið sér saman um innlendan aðila sem þeir vilja sem aðstoðarmann í greiðslustöðvuninni, en deilur eru um framtíð stjórnenda Exista.
Johannes Heinloth, frá Bayerische Landesbank (BL), var staddur hér á landi í lok síðustu viku fyrir hönd stærstu erlendu kröfuhafa Exista. BL er í forsvari fyrir sambankalán alls 27 alþjóðlegra banka til Exista. Erlendu kröfuhafarnir eru alls 37 talsins.
Fundað var tvisvar á dag á meðan Heinloth var á landinu og heimildir Morgunblaðsins herma að hann hafi farið frá Íslandi með rammasamkomulag milli kröfuhafa.
Stærstu innlendu kröfuhafar Exista, Nýja Kaupþing og gömlu bankarnir þrír, reyndu fyrir nokkrum vikum að taka yfir félagið og setja stjórnendur þess af. Sú gjörð var byrjunarpunkturinn á því ferli sem nú virðist ætla að enda á að félagið verði sett í greiðslustöðvun.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er þó enn deilt um hvort forstjórarnir, Erlendur Hjaltason og Sigurður Valtýsson, eigi að sitja áfram. Vilji erlendu kröfuhafanna stendur til þess, en þeir íslensku eru því ósammála.
Nauðsynlegt er að ná sátt milli kröfuhafanna í þessu máli áður en að Exista verður sett í greiðslustöðvun.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.



















