Viðskipti
| mbl
| 16.6.2009
| 12:22
Nauðasamningar Stoða staðfestir
Nauðasamningar Stoða (áður FL Group) hafa verið staðfestir af Héraðsdómi Reykjavíkur.
Stoðir munu í dag greiða öllum kröfuhöfum félagsins kröfur þeirra í samræmi við frumvarp til nauðasamninga Stoða, sem samþykkt var af kröfuhöfum Stoða þann 26. maí sl., með öllum greiddum atkvæðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu til Kauphallarinnar.
Alls nema skuldir FL Stoða um 287 milljörðum króna. Samkvæmt nauðasamningum, sem kröfuhafar samþykktu í lok maí, eru eignir félagsins metnar á 70 til 80 milljarða króna. Eignirnar nema samkvæmt því 25 til 30% af skuldunum miðað við stöðuna í dag.
Stærstu eignirnar eru TM, drykkjarvörufyrirtækið Refresco og fasteignafélagið Landic Property.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















