Viðskipti
| Morgunblaðið
| 17.6.2009
| 5:30
| Uppfært
6:28
Kortavelta minnkar og raðgreiðslum fækkar
Heildarvelta greiðslukorta í maí nam 53,3 milljörðum króna samanborið við 59,9 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Á föstu verðlagi hefur kortaveltan því dregist saman um tæpan fjórðung. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.
Seðlabankinn sundurliðar hversu mikið af veltu kreditkorta er komin til vegna raðgreiðslna á kreditkortum og hefur hún minnkað nokkuð. Var þetta hlutfall að meðaltali 2,6% árið 2007 en hefur nú lækkað og verið að meðaltali 1,6% það sem af er ári. Vinsældir raðgreiðslna virðast því hafa dvínað.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















