Viðskipti
| mbl
| 19.6.2009
| 12:14
Landsbankinn semur um greiðslumiðlun í erlendri mynt
Landsbankinn hefur gert samninga við alþjóðlega banka um greiðslumiðlun í erlendri mynt en frá því í haust hefur erlend greiðslumiðlun að mestu farið fram í gegnum Seðlabanka Íslands.
Segir bankinn, að nú liggi fyrir samstarfssamningur við Citibank um opnun reikninga í öllum helstu viðskiptamyntum bankans, Bandaríkjadal, evru, pundi svissneskum franka og japönsku jeni. Einnig hafi Landsbankinn opnað reikning í kanadískum dollurum hjá Royal Bank of Canada í Kanada, sænskum krónum hjá SEB í Svíþjóð, dönskum krónum hjá Jyske Bank í Danmörku og norskum krónum hjá DnB Nor í Noregi.
Ný greiðslufyrirmæli vegna greiðslna á bankareikninga hjá Landsbankanum má finna á vefsíðu Landsbankans http://www.landsbankinn.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















