Stjórn LSK kærð til lögreglu

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. stækka

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. mbl.is/Gúndi

Fjármálaeftirlitið hefur kært stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK) til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vegna gruns um brot á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og einnig vegna meintra brota á almennum hegningarlögum.

Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, staðfesti þetta í samtali við mbl.is. 

Hið meinta hegningarlagabrot lýtur að því að stjórn lífeyrissjóðsins hafi gefið FME rangar upplýsingar um stöðu lífeyrissjóðsins gagnvart bænum.  

„Þeir fengu frest til þess að bæta úr lántökum sveitarfélagsins hjá sjóðnum þannig að þær rúmuðust innan heimilda. Þeir veittu síðan upplýsingar um að það hefði verið gert en það reyndist ekki vera rétt," segir Helgi Magnús. Stjórn lífeyrissjóðsins sendi fyrr í dag yfirlýsingu þar sem hún lýsir furðu sinni á „hörðum aðgerðum" Fjármálaeftirlitsins (FME) og fjármálaráðuneytisins gegn stjórn sjóðsins en fyrr í dag var stjórn sjóðsins og framkvæmdastjóra vikið tímabundið frá.

Elín Jónsdóttir, lögfræðingur, var skipaður umsjónarmaður með rekstri sjóðsins til tveggja mánaða vegna gruns um að ákvarðanir um fjárfestingar hafi ekki verið í samræmi við lög. Áður en tekin var ákvörðun um að skipa umsjónarmann hafði ítrekuðum kröfum FME um úrbætur ekki verið sinnt. Málið snýst m.a. um kaup lífeyrissjóðsins á skuldabréfi sem Kópavogsbær gaf út. Með því gat bærinn fjármagnað sig að hluta gegnum lífeyrissjóðinn en í stjórn hans sitja m.a. kjörnir fulltrúar bæjarins. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, er formaður stjórnar lífeyrissjóðsins.

Flosi Eiríksson, stjórnarmaður í LFK, sagði í samtali við mbl.is í dag að stjórnin hefði talið sig vera að upplýsa FME á öllum stigum málsins. Þess vegna hafi tímabundin frávikning stjórnar og framkvæmdastjóra sjóðsins, sem tilkynnt var um fyrr í dag, komið á óvart. „Við höfum gert FME viðvart af fyrra bragði ef við höfum talið að eitthvað sé ekki í samræmi. [...] Stjórnin hefur tekið þátt í þessu á öllum stigum,“ sagði Flosi.

Að sögn Helga Magnúsar lýtur málið ekki aðeins að svokölluðu verðtryggðu skuldabréfi sem bærinn hafi selt lífeyrissjóðnum heldur beinum lánveitingum, m.a svokölluðu „peningamarkaðsláni“ til bæjarins. „Þetta snýst um það að þeir hafi verið að lána bænum með ólögmætum hætti,“ segir Helgi Magnús.

Auk Gunnars og Flosa sitja í stjórn lífeyrissjóðsins Sigrún Guðmundsdóttir, Jón Júlíusson og Ómar Stefánsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Arion banki.

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

14:39 Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er eki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankans vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

05:30 Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
Í gær, 21:05 Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

í gær Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
í gær Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

í gær Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
Í gær, 19:42 Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
í gær Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

í gær Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
í gær Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
í gær Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
í gær Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
í gær Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Lækkun á mörkuðum

í gær Allir helstu hlutabréfamarkaðir hafa lækkað í dag vegna stöðu mála í Grikklandi þar sem fjármálaráðherrar ríkja á evrusvæðinu gera auknar kröfur um niðurskurð í Grikklandi. Meira »
script>

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir