LSK skilaði 15,8% neikvæðri ávöxtun
Ómar Stefánsson formaður bæjarráðs og Gunnar Birgisson bæjarstjóri sitja í stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar. Rax / Ragnar Axelsson
Raunávöxtun Lífeyrissjóðs Kópavogs var neikvæð um 15,8% á síðasta ári. Þetta er heldur betri ávöxtun en hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins sem skilaði 25,3% neikvæðri ávöxtun.
Ekkert kemur fram í ársskýrslu Lífeyrissjóðs Kópavogs, sem kynnt var á ársfundi sjóðsins í maímánuði, að sjóðurinn hefði breytt fjárfestingastefnu sinni í þá veru að ávaxta fé sjóðsins í auknum mæli hjá Kópavogsbæ. Fjármálaeftirlitið hefur kært stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vegna gruns um brot á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og einnig vegna meintra brota á almennum hegningarlögum.
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar hefur verið starfræktur frá árinu 1958 og þeir einir launþegar átt greiða í hann sem starfað hafa hjá Kópavogsbæ eða stofnunum hans. Sjóðnum var lokað fyrir nýjum félögum 1993 og þeir einir sem greiddu iðgjöld til sjóðsins í júní 1998 fengu áfram aðild að sjóðnum. Greiðandi sjóðfélögum fer því fækkandi.
Skuldbindingar sjóðsins námu um síðustu mánaðamót 5.7 milljörðum, en eignir hans námu 2,6 milljörðum. Kópavogsbær þarf því að leggja sjóðnum fé til þess að hægt sé að standa við skuldbindingar hans. Gert er ráð fyrir að eignir sjóðsins verði uppurnar árið 2049 og að hægt verði að loka sjóðnum endanlega árið 2070.



















