Lækkun eftir opnun markaða
Frá Kauphöllinni í New York (NYSE). AP
Hlutbréf vestanhafs lækkuðu í verði við opnun markaða í morgun eftir að Alþjóðabankinn tilkynnti að efnahagsbatinn á heimsvísu væri háður óvenjulega mikilli óvissu.
Dow Jones-vísitalan lækkaði um 98 stig, eða 1,2 prósent, eftir að hafa fallið áður um meira en 100 stig. S&P 500 féll um 14,6 stig eða um 1,6 prósent og Nasdaq-vísitalan féll um 30 stig eða 1,6%.
David Jones, hagfræðingur hjá IG Markets í Lundúnum, sagði í samtali við vefútgáfu bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN að hrun á mörkuðum væri afleiðing svartsýni á heimsvísu. Hann sagði að svo virtist sem margir væru þeirrar skoðunar að fólk hefði farið fram úr sjálfu sér. Hagkerfi heimsins væru enn í slæmu ástandi og því væri engin sannfærandi ástæða til að fjárfesta í hlutabréfum.



















