Øygard fundar með seðlabankastjórum
Eftir Þorbjörn Þórðarson - thorbjorn@mbl.isSvein Harald Øygard, seðlabankastjóri, er nú staddur í Stokkhólmi þar sem hann er á árlegum fundi seðlabankastjóra á Norðurlöndunum.
Øygard er í reglulegu sambandi ekki aðeins við fulltrúa annarra seðlabanka því hann fundar reglulega með fjölmörgum hagsmunaaðilum á sviði efnahagsmála. Seðlabanki Íslands er jafnan í nánu sambandi við fjárfestingarbanka, alþjóðleg matsfyrirtæki, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og aðra þá sem hafa áhuga á málefnum sem tengjast aðgerðum til endurreisnar í efnahagslífi á Íslandi. Það á einnig við um málefni sem tengjast innstæðutryggingum erlendis.
„Almennt séð virðist okkur að aðilar á alþjóðavettvangi líti þannig á að mikilvægt sé að draga úr óvissu í sambandi við umfang og kjör ríkisskulda. Það er mikilvægt að festa skuldir til langs tíma til að bæta greiðsluhæfi og auka stöðugleika,“ segir Øygard.
Hann segir að önnur málefni skipti einnig miklu í þessu samhengi, svo sem traust umgjörð ríkisfjármála og endurskipulagning bankakerfisins. „Hinir erlendu aðilar hafa einnig mikinn áhuga á almennu ástandi hér og horfum til framtíðar. Seðlabankinn mun halda áfram viðræðum við ýmsa erlenda aðila um þessi málefni og mörg önnur, þar á meðal málefni er tengjast innstæðutryggingum erlendis. Ljóst er að þessir aðilar taka mið af öllum þessum þáttum,“ segir Øygard.
Ekki „junk bonds“ því þjóðin virðir skuldbindingar sínar
Innan tíðar skila lánshæfismatsfyrirtæki eins og Fitch Ratings í Lundúnum nýjum lánshæfiseinkunum fyrir Ísland. Paul Rawkins, framkvæmdastjóri hjá lánshæfismatsfyrirtækinu Fitch í Lundúnum, sagði í síðustu viku að ástæða þess að fyrirtækið hefði ekki afskrifað lánshæfi Íslands væri sú að landið hefði ekki virt að vettugi erlendar skuldbindingar sínar.
Fitch metur lánshæfi ríkissjóðs BBB- með neikvæðum horfum, sem er aðeins einu þrepi fyrir ofan lágmarkseinkunn sem gefin er. En það þýðir í reynd að lánshæfið er í botni (junk bonds).
„Skuldir hins opinbera hafa aukist nokkuð hratt og kostnaður vegna endurskipulagningar bankakerfisins gefur fyrirheit um að þær muni aukast enn frekar,“ sagði Rawkins. Hann sagði að Fitch myndi bíða eftir því að þessi mál yrðu kláruð áður en fyrirtækið gæfi út nýja lánshæfiseinkunn fyrir íslenska ríkið.




















