Viðskipti
| mbl
| 25.6.2009
| 14:42
| Uppfært
16:45
Finnar samþykkja Íslandslán
Reuters
Finnska ríkisráðið hefur samþykkt að veita Íslendingum lán að upphæð 325 milljónir evra, jafnvirði 58 milljarða króna. Er þetta hluti af samkomulagi, sem Ísland gerði við Norðurlöndin um að fá alls 2,5 milljarða dala að láni.
Fram kemur á vefnum yle.fi, að Finnland, Danmörk, Noregur og Svíþjóð hafi í nóvember í fyrra fallist á að veita Íslandi lán til að stuðla að því að fjárhagslegur stöðugleiki komist þar á að nýju. Ísland fær einnig 2,1 milljarð dala að láni hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Skrifað verður undir norrænu lánasamningana í Stokkhólmi í næstu viku, að sögn Yle.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















