Munur á gengi krónu minnkar

Munur á gengi krónunnar gagnvart evru á aflandsmarkaði og opinberu gengi Seðlabanka Íslands hefur minnkað á ný. Að sögn hagfræðideildar Landsbankans hefur krónan styrkst gagnvart evru síðustu vikuna í viðskiptum á aflandsmarkaði en veikst lítillega í opinberum viðskiptum og því hefur heldur dregið úr mun á gengi evru gagnvart krónu á þessum tveimur mörkuðum.

Í Hagsjá Landsbankans segir, að ef miðað sé við skráð gengi Seðlabankans hefur krónan veikst látlaust gagnvart evru síðan í byrjun mars. Gengi evru hafi þannig stigið úr um 141 krónum í tæpar 180 krónur, eða um rúm 27%.

Aflandsgengið hafi hinsvegar sveiflast á þessu tímabili, úr 205 krónum í 300 krónur og stendur nú í 220 krónum. Þannig sé aflandsgengi evru um 42 krónum hærra en gengi Seðlabankans í dag en munurinn var mestur 24. mars, 145 krónur.

Fyrir hrun bankanna síðasta haust munaði mestu um 4 krónum á gengi evru á aflandsmarkaði og Seðlabankagengi. Raunar breikkaði bilið aðeins tvisvar svo mikið á öllu tímabilinu frá miðju ári 2006 og þar til í október, enda flæddi fjármagn frjálst milli Íslands og annarra landa á þessum tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK