Viðskipti
| mbl
| 30.6.2009
| 9:19
2,4% samdráttur í Bretlandi
Breska hagkerfið dróst saman um 2,4% á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við síðasta fjórðung ársins 2008. Er þetta mesti samdráttur, sem mælst hefur þar í landi frá árinu 1958 að sögn bresku hagstofunnar og meiri en bráðabirgðatölur sýndu.
Miðað við fyrsta ársfjórðung 2008 er samdrátturinn 4,9% og er það mesti samdráttur milli ára frá því byrjað var að safna þessum hagtölum árið 1948.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















