Eignarhald á Existu er í uppnámi
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.isÓljóst er hvort ætlaðir forsvarsmenn Existu hafa haft umboð til að taka ákvarðanir fyrir hönd félagsins síðustu sjö mánuði eða svo. Hlutafjáraukning sem var framkvæmd þann 8. desember og gerði það að verkum að félag í eigu bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssonar varð stærsti einstaki eigandi Existu hefur verið afturkölluð og Fyrirtækjaskrá hefur þegar kveðið upp formlegan úrskurð um að hlutafjáreign í félaginu verði færð aftur í það horf sem hún var í fyrir aukninguna.
Nýja Kaupþing stærsti eigandi
Samkvæmt því er Nýja Kaupþing stærsti einstaki eigandi Existu með 45,21 prósents eignarhlut sem bankinn eignaðist eftir að hann leysti til sín hlut bræðranna í hollenska félaginu Bakkabraedur Holding B.V. Ofangreind hlutafjáraukning var viðbragð við því og tryggði bræðrunum áframhaldandi yfirráð í Existu. Á grundvelli hennar hafa þeir meðal annars staðið í viðræðum við kröfuhafa félagsins um framtíð þess. Auk þess var haldinn hluthafafundur í Existu 26. maí síðastliðinn þar sem samþykktum félagsins var meðal annars breytt. Vægi atkvæða á fundinum miðaðist við að félag Lýðs og Ágústs, BBR ehf., ætti tæp 90 prósent í Existu. Alls óljóst er hvort þeir hafa haft nokkurt umboð til að sýsla með félagið.Grunur um blekkingar
Nýja Kaupþing ákvað að leysa til sín hlut bræðranna í Existu í desember og þurrka þá þannig út sem eigendur. Áður en tókst að klára það mál ákvað stjórn Existu að auka hlutafé í Existu um 50 milljarða króna að nafnvirði og skráði BBR ehf. sig fyrir því öllu. Greitt var fyrir með hlutafé í öðru félagi í þeirra eigu, Kvakki ehf. Eftir þann snúning áttu bræðurnir 78 prósent í félaginu en eign Nýja Kaupþings þynntist niður í 10,4 prósent. Bræðurnir gerðu síðan öðrum hluthöfum yfirtökutilboð og eignuðust rúmlega 89 prósent hlutafjár.Hlutafé Kvakks, sem notað var til greiðslu, var hins vegar einungis einn milljarður að nafnvirði. Í hlutafélagalögum stendur orðrétt að „greiðsla hlutar má ekki nema minna virði en nanfverði hans“. Á grundvelli þessa misræmis hóf Fyrirtækjaskrá að skoða hvort aukningin stæðist lög. Þá kannaði hún einnig hvort þeir lögmenn og endurskoðendur sem komu að gerð tilkynningar um hlutfjáraukninguna hefðu vísvitandi gefið villandi upplýsingar. Það eru Logos og Deloitte.
Forsvarsmenn Existu sendu sjálfir tilkynningu um að hlutafjáraukningin hefði verið dregin til baka síðastliðið föstudagskvöld. Það nægði þó ekki til þess að Fyrirtækjaskrá hætti afskiptum af málinu og liggur nú úrskurður í því fyrir.



















