Vaxtakjör ekki gefin upp

mbl.is/Ómar

Vaxtakjör langtímalánasamnings norrænu ríkjanna við Seðlabanka Íslands eru ekki gefin upp en skrifað var undir samninginn í morgun, að því er fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka. Líkt og greint var frá á mbl.is í morgun hljóðar samningurinn  upp á 1,775 milljarða evra lán til 12 ára. Einungis þarf að greiða vexti af láninu fyrstu fimm árin.

Enn standa viðræður yfir viðræður við bæði Pólverja og Rússa um hugsanlega lánveitingu þessara aðila til íslenska ríkisins en ekkert er enn komið í höfn í þeim samningaviðræðum. Þá höfðu Færeyingar áður gengið frá 60 milljón dala láni sem þegar hefur verið afgreitt, samkvæmt Morgunkorni. 

Langri bið lokið

Eftir margra mánaða bið hafa norrænu ríkin loksins lokið við að skrifa undir langtímalánasamning við íslenska Seðlabankann en nú er liðið á níunda mánuð síðan byrjað var að tala um lánveitinguna, samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka. Lánið verður notað til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans. Það verður greitt út í fjórum jöfnum greiðslum sem munu fylgja næstu endurskoðunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Lánasamningurinn er á milli Íslands og Danmerkur, Finnlands og Svíþjóðar og milli Seðlabanka Íslands, með ábyrgð íslenska ríkisins, og Noregsbanka, með ábyrgð norska ríkisins, að því er segir í sameiginlegri tilkynningu frá stjórnvöldum á Norðurlöndunum.

Lánin eru veitt í tengslum við og til þess að styðja áætlun Íslendinga í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) sem hefur það að markmiði að koma á stöðugleika og umbótum í íslenskum efnahagsmálum. Lánunum er ætlað að efla gjaldeyrisvarasjóð Íslands. Þessi lán frá norrænu lánveitendunum fjórum, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, eru jafnframt mikilvægt framlag þeirra í viðleitni alþjóðasamfélagsins til þess að sigrast á alþjóðafjármálakreppunni, samkvæmt tilkynningu.

„Frá því forsætisráðherrar Norðurlanda ákváðu í lok október 2008 að skipa norrænan starfshóp Íslandi til stuðnings hafa Norðurlöndin átt náið samstarf um þetta viðfangsefni og fagna því nú að náðst hefur samkomulag um öll atriði samninganna.

Lánin sem eru til 12 ára leggja Íslandi til mikilvæga fjármögnun til langs tíma og sýna um leið samstöðu lánveitenda með Íslendingum og staðfastan langtímastuðning þeirra við Ísland í þeirri erfiðu stöðu í efnahags- og fjármálum sem nú er við að glíma.

Útborganir háðar AGS

Lánsféð verður ekki borgað út um leið og samningarnir hafa verið undirritaðir. Lánin verða borguð út í fjórum jöfnum hlutagreiðslum sem eru tengdar fjórum fyrstu endurskoðunum á efnahagsáætlun Íslands með AGS, og er hver greiðsla háð því að viðkomandi endurskoðun hafi verið samþykkt," að því er segir í sameiginlegri tilkynningu frá norrænu ríkjunum.

Ísland hefur skuldbundið sig til þess að framkvæma þá stöðugleika- og umbótaáætlun í efnahagsmálum sem samið hefur verið um við AGS. Í þessu sambandi eru samningar Íslendinga við Breta og Hollendinga um uppgjör skuldbindinga Íslands vegna Icesave-málsins mikilvægur áfangi, að því er segir í tilkynningunni.

„Framundan eru ákvarðanir í einstökum atriðum um áætlanir Íslendinga um aðgerðir til þess að koma á jafnvægi í fjármálum hins opinbera og um aðgerðir til þess að endurskipuleggja bankakerfið á sanngjarnan hátt, en þetta tvennt er mikilvægt fyrir framgang efnahagsáætlunarinnar.

Í samræmi við stefnu íslenskra stjórnvalda og AGS er nú unnið að undirbúningi frekari aðgerða á þessum sviðum sem nauðsynlegt er að verði ákveðnar áður en fyrsta endurskoðun efnahagsáætlunar Íslendinga með AGS fer fram, og fyrsti hluti norrænu lánanna verður borgaður út."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir