Viðskipti
| AFP
| 2.7.2009
| 11:55
Stýrivextir óbreyttir á evrusvæðinu
Seðlabanki Evrópu hefur ákveðið að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 1%. Hafa stýrivextir aldrei verið jafn lágir á svæðinu en aukinn ótti er um verðhjöðnun í þeim sextán ríkjum sem mynda myntbandalag Evrópu. Aðrir vextir bankans eru einnig óbreyttir.
Fyrr í morgun lækkaði Seðlabanki Svíþjóðar stýrivexti sína í 0,25% sem er það lægsta sem vextir bankans hafa farið í. Hins vegar hélt Seðlabanki Íslands stýrivöxtum sínum óbreyttum í 12% í morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















