Styttist í lánshæfiseinkunn frá Fitch
Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings mun ljúka endurskoðun sinni á lánshæfi ríkisjóðs um miðjan þennan mánuð, segir Paul Rawkins sérfræðingur hjá Fitch í viðtali við Reuters fréttastofuna.
Lánshæfismat ríkissjóðs hefur verið á neikvæðum horfum hjá Fitch frá því í bankahrunið skall á síðastliðið haust og er einkunn ríkisjóðs fyrir skuldbindingar sjóðsins í erlendri mynt til lengri tíma nú BBB- sem er jafnframt lægsta stig í svokölluðum fjárfestingaflokki í einkunnakerfis Fitch, að því er fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka.
„ Lækki einkunn ríkisjóðs meira fellur hún niður í áhættuflokk sem endurspeglar óviðunandi áhættustig og vafasama greiðslugetu. Í kjölfar endurskoðunarinnar verður ákvörðun tekin um hvort lánshæfi Íslands lækki niður í áhættuflokk en ljóst er að slík lækkun myndi hafa slæmar afleiðingar í för með sér fyrir möguleika ríkisjóðs á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum sem og á öll íslensk fyrirtæki og stofnanir sem þurfa á alþjóðlegri fjármögnun að halda," samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka.
Að sögn Rawkins eru margir mikilvægir þættir sem hafa áhrif á framtíð lánshæfismats ríkisjóðs á þessari stundu.
Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að ljúka fyrstu endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á farsælan hátt og ganga frá lánasamningum við helstu vinaþjóðir okkar sem og Icesave samkomulaginu við Breta og Hollendinga.
Í öðru lagi verður að reisa við bankakerfið og koma því í fulla starfsemi. Í þriðja lagi er nauðsynlegt að sýna aðhald í ríkisfjármálum til að stemma stigu við versnandi skuldastöðu ríkisjóðs.
Í ljósi þess að útlit er nú fyrir að öll þessi mál verði til lykta leidd á næstu vikum er ekki óraunhæft að gera ráð fyrir að lánshæfiseinkunn ríkisjóðs haldist í fjárfestingaflokki, í það minnsta í bókum Fitch Ratings.
Langtímaáætlun í ríkisfjármálum hefur nú verið kynnt til sögunnar og lokavinna varðandi endurreisn bankakerfisins er í fullum gangi. Þá mun Alþingi fá Icesave til umfjöllunar í dag. Enn ríkir þó töluverð óvissa um hvort þingið samþykki ríkisábyrgð vegna samkomulagsins, samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka.



















