Forstjóri Tals ánægður með niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins
Lögreglumaður á verði við skrifstofur Teymis þegar starfsmenn Samkeppniseftirlitsins gerðu þar húsleit. Árni Sæberg
Þessi niðurstaða tryggir Tali framtíð, segir Hermann Jónasson, forstjóri Tals en Teymi hefur verið gert að greiða 70 milljónir króna í stjórnvaldssekt og að selja eignarhlut sinn í Tali.
Einnig segir hann að nú sé neytendum tryggð samkeppni á fjarskiptamarkmiði. Hann er að vonum ánægður með niðurstöðuna og segist feginn að málinu sé lokið, málið hafi tekið mjög á fyrirtækið og starfsfólk þess. „Nú er Tal komið til að vera, það er ekkert sem getur stöðvað okkur núna.“
Grunur Samkeppniseftirlitsins kom stjórnendum Teymis mjög á óvart
Í tilkynningu frá Teymi kemur fram að Samkeppniseftirlitið og Teymi, ásamt Vodafone, hafa gert með sér sátt í máli sem hófst með húsleit Samkeppniseftirlitsins í janúar sl. Tilefni húsleitarinnar var grunur um að skilyrðum sem sett voru við sameiningu SKO og Hive hefði ekki verið fylgt og tilraunir hefðu verið gerðar til að draga úr samkeppni á fjarskiptamarkaði.
„Sá grunur Samkeppniseftirlitsins kom stjórnendum Teymis mjög á óvart, því samkeppni á fjarskiptamarkaðnum hefur aldrei verið meiri en eftir stofnun Tals. Allar ákvarðanir stjórnenda Teymis voru teknar í góðri trú og var ætlað að styrkja Tal og stuðla að jákvæðri afkomu þess.
Á undanförnum mánuðum hafa málsaðilar deilt um merkingu einstakra skilyrða sem Samkeppniseftirlitið setti við sameiningu Hive og SKO á sínum tíma og ljóst er að túlkanir á ákvæðum samkeppnislaga eru ólíkar. Eftir ítarlega skoðun hefur Teymi hins vegar fallist á að undirgangast sátt við Samkeppniseftirlitið. Í henni fellst greiðsla á stjórnvaldssekt og skilyrði, sem m.a. fela í sér að eignarhlutur Teymis í Tali verði seldur innan tveggja ára. Teymi fagnar því að málinu sé lokið, enda er það hagsmunamál fyrir fyrirtækið að eyða óvissu um málið sem annars hefði getað dregist verulega á langinn. Teymi mun í einu og öllu virða túlkun Samkeppniseftirlitsins á þeim ákvæðum sem deilt var um og stuðla áfram að samkeppni í íslenskum fjarskiptamarkaði," að því er segir í tilkynningu frá Teymi.



















