Viðskipti
| AFP
| 3.7.2009
| 8:32
Verðhjöðnun í Sviss
Verðhjöðnun ríkir nú í Sviss en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í júní frá maímánuði. Á tólf mánaða tímabili mælist verðbólga neikvæð um 1% og hefur ekki ríkt jafn mikil verðhjöðnun þar í landi í fimmtíu ár. Helsta skýringin á hækkun vísitölunnar á milli mánaða er hækkun á eldsneytisverði. Í júlí í fyrra mældist verðbólga í Sviss 3,1%.
Verð á fatnaði lækkaði um 4,4% í Sviss í júní en þar eru sumarútsölur byrjaðar. Verð á innfluttum vörum lækkaði að meðaltali um 6,5% í júnímánuði í Sviss.
Samkvæmt spá Seðlabanka Sviss mun verðhjöðnun ríkja í landinu út árið en á næsta ári muni verðbólga mælast 0,4%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















