Gjaldeyrisforðinn lækkar um rúma 42 milljarða
Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 384,1 milljarði króna í lok júní og lækkaði um 42,1 milljarð króna í mánuðinum. Erlend verðbréf hækkuðu um 7,7 milljarða króna í júní en seðlar og innstæður lækkuðu um 49,8 milljarða eða um tæp 25%. Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands dróst saman um 60 milljarða króna í júní og hefur það sem sem af er ári dregist saman um 58 ma.kr.
Ríkissjóður dró tæpa 54 ma.kr. af viðskiptareikningum sínum í mánuðinum, en hefur það sem af er ári dregið tæpa 12 ma.kr. út af reikningum sínum. Þá hafa innstæður innlánsstofnana lækkað um 35 ma.kr. frá byrjun júní, þó jukust innstæður um 36 ma.kr. en innstæðubréf, innstæður á gjaldeyrisreikningum og aðrar kröfur lækkuðu samtals um 71 ma.kr. Skuldir Seðlabankans við aðra aðila hafa vaxið um 17 ma.kr., samkvæmt Hagsjá hagdeildar Landsbankans.



















