Viðskipti
| AFP
| 8.7.2009
| 8:38
Yfir 8.000 fyrirtæki í þrot í Japan
Yfir átta þúsund japönsk fyrirtæki urðu gjaldþrota á fyrstu sex mánuðum ársins og hafa ekki verið fleiri í sex ár. Um er að ræða fyrirtæki sem skulduðu yfir 10 milljónir jena, 13,4 milljónir króna hvert. Hefur fyrirtækjum sem urðu gjaldþrota á fyrri hluta ársins fjölgað um 8,2% á milli ára.
Samanlagðar skuldir fyrirtækjanna, sem alls eru 8.169 talsins, eru 4,69 billjónir jena (milljón milljónir) og eru þær 47,3% meiri heldur en samanlagðar skuldir fyrirtækja sem fóru í þrot á fyrstu sex mánuðum ársins í fyrra.
Í júní fóru 1.422 fyrirtæki í þrot í Japan sem er 18,2% aukning frá maímánuði. Ekki hafa jafn mörg fyrirtæki farið í þrot í Japan júnímánuði síðan í júní 2002.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















