Eignarhaldið greint
Frá Lúxemborg. mbl.is/Ómar Óskarsson
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Embætti ríkisskattstjóra hefur nú undir höndum mikið af upplýsingum frá bönkum og opinberum aðilum í Lúxemborg um eignarhald Íslendinga á félögum í þekktum skattaskjólum á borð við bresku Jómfrúareyjarnar. Aðalsteinn Hákonarson, deildarstjóri hjá ríkisskattstjóra, segir að verið sé að vinna að greiningu þeirra gagna.
„Við erum búnir að fá heilmikið af upplýsingum frá bönkum og Lögbirtingablaðinu og fyrirtækjaskrá í Lúxemborg. Það á síðan eftir að fara í gegnum þau og skoða tengingar. Svo þurfum við að rekja þetta inn í ársreikninga þessara aðila og athuga hvort gerð hafi verð grein fyrir félögunum. Sú vinna er hafin.“
Aðalsteinn segir að samkvæmt upplýsingunum sem embættið hefur aflað sér sé ljóst að Íslendingar hafi átt gríðarlega mörg félög á aflandsvæðum.




















