Makaskiptasamningar mun algengari en áður
mbl.is
Alls voru gerðir 62 makaskiptasamningar um fasteignir í síðasta mánuði á höfuðborgarsvæðinu. Alls var 153 kaupsamningum þinglýst í mánuðinum. Ein fasteign var greidd með lausafé. Í júní 2006 voru kaupsamningarnir 453 talsins, þar af 1 makaskiptasamningur, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.
Í júní í fyrra voru kaupsamningarnir 178 talsins á höfuðborgarsvæðinu, þar af 53 makaskiptasamningar.
Fasteignaskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra makaskiptasamninga á höfuðborgarsvæðinu frá júní 2006. Með makaskiptasamningi er átt við kaupsamning um fasteign þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Jafnframt var athugað í hversu mörgum tilvikum hluti kaupverðs var greiddur með lausafé.



















