Viðskipti
| mbl
| 16.7.2009
| 16:23
Vísitala
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkar um 0,4% á milli mánaða. Vísitalan var 311 stig í júní 2009 (janúar 1994=100), segir í frétt frá Fasteignaskrá Íslands.
Síðastliðna þrjá mánuði lækkaði vísitalan um 3,7%, síðastliðna sex mánuði hefur hún lækkað um 9,5% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 10,8%, segir í fréttinni.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















