Miklar afskriftir hjá Sports Direct
Milljarðamæringurinn Mike Ashley, sem meðal annars á knattspyrnufélagið Newcastle United og íþróttavörukeðjuna Sports Direct, varð af 10 milljónum punda í gær þegar Sports Direct ákvað í gær að draga verulega úr arðgreiðslum félagsins vegna samdráttar í hagnaði. Dróst hagnaður félagsins saman um 91% fyrir skatta og nam 10,7 milljónum punda. Hins vegar dróst rekstrarhagnaður einungis saman um 20,2% og var 68,2 milljónir punda. Sala keðjunnar jókst um 8,3% og nam tæplega 1,4 milljörðum punda.
Segir í tilkynningu frá félaginu að afkoma félagsins hafi versnað til muna einkum og sér í lagi vegna hluts félagsins í öðrum keðjum. Sá hlutur hafi verið afskrifaður eftir að fall Singer & Friedlander, dótturfélags gamla Kaupþings í Bretlandi, í kjölfar hruns íslensku bankanna.
Meðal íþróttakeðja sem um ræðir eru: JJB Sports, JD Sports Fashion, Blacks Leisure og Amer Sports, að því er segir á vefnum Scotsman. Þar segir að Singer & Friedlander hafi fjármagnað kaup Sports Direct í öðrum keðjum að hluta. Fréttin í heild


















