Skuldatryggingarálag ríkisins lækkar
Viðbrögð við samþykkt umsóknar um aðild að Evrópusambandinu á Alþingi í gær hefur ekki haft merkjanleg áhrif á innlendum mörkuðum enn sem komið er, en erlendis hefur skuldatryggingarálag á ríkissjóð lækkað nokkuð. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka.
Viðskipti með gjaldeyri voru lítil í gær og var gengi krónu nánast
óbreytt eftir daginn. Á skuldabréfamarkaði lækkað krafa íbúðabréfa
nokkuð, en þar telur Greining Íslandsbanka að hafi verið á ferð viðbrögð við lítilli
sölu Seðlabankans á íbúðabréfum í útboði sínu á miðvikudag, fremur en
að markaðurinn hafi verið að bregðast við fréttum frá Alþingi. Krafa
ríkisbréfa breyttist lítið í gær.
„Erlendis virðast þeir aðilar sem aðkomu hafa að Íslandi í einhverjum mæli á fjármálamörkuðum flestir hafa tekið tíðindunum með ró. Aflandsgengi krónu gagnvart evru hefur til að mynda ekki breyst í miðlunarkerfi Reuters frá því fyrir atkvæðagreiðsluna.
Telja ýmsir á erlendum mörkuðum að fréttir af endurskipulagningu bankanna og sér í lagi afléttingu gjaldeyrishafta muni skipta meiri sköpum fyrir traust á Íslandi næsta kastið en ESB-umsóknin. Hins vegar lækkaði skuldatryggingarálag á ríkissjóð talsvert í gær. Álagið fór úr 660 punktum í upphafi dags í 624 punkta í dagslok samkvæmt gögnum frá Bloomberg.
Í frétt á Reuters, þar sem fjallað var um lækkandi skuldatryggingarálag íslenska ríkisins, var það tekið fram að viðskipti með skuldatryggingar á ríkissjóð hefðu verið líflegri í eftirmiðdaginn en um morguninn. Hreyfingin á skuldatryggingum ríkissjóðs var einnig úr takti við almennt verð á skuldatryggingum, sem yfirleitt stóð í stað eða hækkaði nokkuð í gær.
Þetta bendir til þess að einhverjir á markaði telji ríkissjóð nú heldur áreiðanlegri skuldara í erlendri mynt en áður. Þó verður að hafa í huga að dagsveiflur í verði skuldatrygginganna geta verið talsverðar og tíminn mun leiða í ljós hvort lækkunin í gær er komin til að vera."



















