Lettar og IMF þokast nær samkomulagi
Stjórnvöld í Lettlandi og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn (IMF) hafa þokast nær samkomulagi undanfarna daga en IMF hefur ekki viljað afhenda Lettum hluta af láni sem samið var um að veita ríkinu í desember. Gerir IMF það að skilyrði að stjórnvöld komi ríkisfjármálum í betra ástand heldur en þau telja sig geta gert að svo stöddu.
Í síðustu viku var útlit fyrir að Lettar fengju ekki 600 milljónir evra útgreiðslu af 7,5 milljarða evra lánapakka sem IMF og fleiri stofnanir og ríki koma að. Lettar áttu að fá 600 milljónirnar greiddar út í mars en þar sem ríkissjóði hefur ekki tekist að sannfæra sendinefnd IMF um að aðgerðir stjórnvalda séu til þess fallnar að draga úr ríkisútgjöldum þá hefur greiðslan tafist.
Valdis Dombrovskis, forsætisráðherra Lettlands, sagði í viðtali við ríkissjónvarpið í Lettlandi í morgun að góður gangur sé í viðræðunum og hann telji líklegt að þeir muni ná svipaðri lendingu og náðist í viðræðum við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. En sambandið hefur meðal annarra aðstoðað Letta vegna kreppunnar sem þar ríkir.
Í byrjun næstu viku fær Lettland afgreitt lán frá ESB upp á 1,2 milljarða evra. Lánið er hluti af samkomulagi frá því í desember sem IMF er meðal annars aðila að. Evrópusambandið ætlast til þess að helmingur fjárhæðarinnar renni í bankageirann sem berst í bökkum.


















