Ísland á dagskrá stjórnar AGS

Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.
Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.

Á fundi yfirstjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) næstkomandi mánudag, á frídegi verslunarmanna, verður rætt um málefni Íslands og endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi samkvæmt dagskrá stjórnar sjóðsins.

Samkvæmt upphaflegu áætluninni frá því í nóvember 2008 var gert ráð fyrir að fyrstu tvær endurskoðanirnar og greiðslur tengdar þeim færu fram í febrúar og maí á þessu ári. Fyrirtaka sjóðsins á fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunarinnar hefur tafist ítrekað þar sem ekki höfðu öll skilyrði til fyrirtöku verið uppfyllt í tæka tíð.

Í Hagsjá hagdeildar Landsbankans segir að nú hafi dregið til tíðinda þar sem samkomulag stjórnvalda við skilanefndir bankanna þriggja var kynnt í síðustu viku auk þess sem skýrsla um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009-2013 var lögð fyrir Alþingi í lok júní.

„Raunar birti fjármálaráðuneytið í dag drög að endurskoðun skýrslunnar, en gerðar hafa verið breytingar sem til þess eru fallnar að samræma skýrsluna við samstarfsáætlunina við AGS. Þetta var talið nauðsynlegt til þess að endurskoðun hennar í stjórn sjóðsins geti farið fram," samkvæmt Hagsjá Landsbankans.

Hið endurskoðaða mat hefur ekki áhrif á meginatriði áætlunarinnar, þ.e. þörf á aðhaldsaðgerðum, sem er óbreytt. Þau atriði sem einkum valda breytingum eru mismunur á mati AGS og fjármálaráðuneytisins á áhrifum aðhaldsaðgerða, vanmat á áhrifum af uppsöfnun aðhaldsaðgerða og breyttar þjóðhagsforsendur.

Þá eru áfallnir vextir af lánum nú meðtaldir (Icesave og lán Seðlabanka Íslands) og upplýsingar um endurfjármögnun banka, vaxtaforsendur og endurfjármögnun erlendra skulda hafa verið uppfærðar, að því er segir í Hagsjá Landsbankans.

Helsta breytingin á skýrslunni um jöfnuð í ríkisfjármálum er sú að frumhalli á árinu 2009 verður um 0,6% af VLF minni en áður var reiknað með og á árunum 2010-2013 verður frumjöfnuðurinn hærri en áður var áætlað sem nemur um 1,4% af VLF að jafnaði. Áhrif þessi koma síðan fram í áætluðum tekjum og gjöldum hvers árs eins og þau eru sett fram sem hlutfall af VLF, að því er fram kemur í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK