Viðskipti
| AFP
| 29.7.2009
| 9:08
Toshiba tapar enn
Atsutoshi Nishida forstjóri og stjórnarformaður Toshiba
Tap japanska tæknifyrirtækisins Toshiba nam 57,8 milljörðum jena, 76,95 milljörðum króna. Segir í tilkynningu frá Toshiba að sala á sjónvörpum og öðrum rafmagnsvörum hafi dregist stórlega saman í kreppunni.
Á sama tímabili, apríl-júní, í fyrra nam tap Toshiba 11,6 milljörðum jena. Hljóðar afkomuspá félagsins upp á 50 milljarða jena tap á rekstrarárinu sem lýkur þann 31. mars nk. Á síðasta rekstrarári nam tap Toshiba 343,6 milljörðum jena og hefur félagið aldrei tapað jafn miklu á einu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















