Rekstrartap BA 20 milljarðar króna
Rekstrartap breska flugfélagsins British Airways nam 94 milljónum punda, rúmum 20 milljörðum króna, á fyrsta fjórðungi rekstrarársins, apríl-júní. Á sama tímabili í fyrra nam rekstrarhagnaðurinn 35 milljónum punda. Segir í tilkynningu frá félaginu að rekstrarskilyrði þess séu afar erfið og verði það væntanlega áfram. Horfur séu slæmar í flugrekstri almennt.
Tap BA fyrir skatta nam 148 milljónum punda en á sama tímabili í fyrra var hagnaður fyrir skatta 37 milljónir punda. Tekjur BA drógust saman um 12,2% og voru 1,983 milljarðar punda á ársfjórðungnum.
Fraktflug dróst einnig saman hjá BA en tekjur af því drógust saman um 28,1%.
British Airways hefur gripið til margvíslegra hagræðingaraðgerða að undanförnu. Meðal annars hefur 1.450 starfsmönnum verið sagt upp síðan í mars og í júní tóku þúsundir starfsmanna á sig launalækkun með því að heita því að vinna kauplaust í allt að einn mánuð á árinu.



















