Tap MP banka 412 milljónir króna
Vaxtamunur var jákvæður um aðeins 48 milljónir króna eða talsvert innan við 1% á ársgrundvelli. Á sama tímabili á árinu 2008 var vaxtamunur jákvæður um 762 milljónir króna.
Þjónustutekjur drógust saman um 23% frá sama tímabili á fyrra ári og námu 444 milljónum króna, en voru 578 milljónir fyrstu sex mánuði ársins 2008.
166 milljónir afskrifaðar
Ný framlög í afskriftasjóð útlána voru 192 milljónir króna nettó, en voru 45 milljónir á sama tíma árinu áður. Í afskriftasjóði bankans eru nú samtals 2.263 milljónir króna, þar af voru 1.723 milljónir vegna útlána sem hugsanlega kunna að tapast. Nemur sú fjárhæð 15,6% af heildarútlánum bankans. Á tímabilinu voru útlán og kröfur að fjárhæð samtals 166 milljónum króna afskrifaðar að fullu.
Tap af rekstri lífeyrissjóðafyrirtæki í Litháen
Bókfært tap vegna hlutdeildarfélaga var 72 milljónir króna en af þeim var 83ja milljóna króna hagnaður árinu áður. Tapið nú er til komið vegna MP Pension Funds Baltic sem er lífeyrissjóðafyrirtæki í Litháen í 50% eigu MP Banka.
„Uppbygging þess gengur samkvæmt áætlun en fjárfestingin er afskrifuð jafnóðum og viðskiptavild ekki eignfærð. Hlutdeildarfélagið Hraunbjarg var afhent hluthöfum á tímabilinu sem arðgreiðsla og reiknast afkoma þess ekki lengur samkvæmt hlutdeildaraðferð," að því er segir í tilkynningu.
Eigið fé bankans nam 5.294 milljónum króna en heildareignir voru 56.720 milljónir. Reiknað eiginfjárhlutfall bankans skv. lögum um fjármálafyrirtæki (CAD) var 17,5%, en má lægst vera 8%.
Rekstraraðstæður voru afar óhagstæðar á tímabilinu
„Lausafjárstaða bankans var mjög sterk í lok tímabilsins, en kröfur á Seðlabanka Íslands, eignir í íslenskum ríkistryggðum skuldabréfum og erlendum bankainnistæðum námu þá samtals 35 milljörðum króna. MP Banki jók innlán sín verulega á tímabilinu, úr 8.6 milljörðum króna í árslok 2008 í 31 milljarð króna.
Tap bankans á fyrri hluta ársins 2009 endurspeglar kostnað bankans af nýrri starfsemi og aðlögun að breyttum aðstæðum á íslenskum fjármálamarkaði. Rekstraraðstæður voru afar óhagstæðar á tímabilinu. Seðlabanki Íslands lækkaði innlánsvexti sína verulega niður í 9,5% sem leiddi til minnkandi vaxtatekna. Á sama tíma hélt Seðlabankinn útlánsvöxtum sínum háum, í lok tímabilsins voru þeir 12%, eða tveimur og hálfu prósentustigum hærri en innlánsvextirnir.
Þrátt fyrir mikinn vöxt innlána á tímabilinu minnkaði MP Banki útlán sín. Íslenskt efnahagslíf er ennþá í uppnámi eftir hrun Kaupþings, Landsbankans og Glitnis, síðastliðið haust. Þegar horfur í efnahagslífinu skýrast getur bankinn hafið útlán í verulegum mæli að nýju og þar með aukið arðsemi sína," að því er segir í tilkynningu.



















