Viðskipti
| Morgunblaðið
| 4.8.2009
| 5:59
| Uppfært
7:08
Iceland Express hefur keypt Heklu Travel
Iceland Express hefur keypt ferðaskrifstofuna Heklu Travel af þrotabúi Fjárfestingarfélagsins Fons. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, segir að fáir markaðssetji Ísland um þessar mundir og ef Iceland Express hefði ekki tekið við boltanum hefðu menn óttast að Hekla Travel lognaðist út af. Hins vegar væri ekkert kappsmál að eiga fyrirtækið heldur að tryggja starfsemi þess.
Að sögn Matthíasar er gert ráð fyrir að flestir eða allir 10 starfsmenn Heklu Travel haldi áfram. Reksturinn verði einfaldaður og sérhæfður að Íslandsferðum, en borgarferðir og Kýpurferðir verði aflagðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















