Viðskipti
| mbl
| 4.8.2009
| 10:03
Mikið tap hjá Northern Rock
Merki Northern Rock Reuters
Tap breska bankans Northern Rock nam 724,2 milljónum punda á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 585,4 milljónir punda á sama tímabili í fyrra. Bankinn, sem var þjóðnýttur fyrra, segir vanskil af fasteignalánum vera 3,92% en að meðaltali er hlutfallið 2,39% í Bretlandi.
Stjórnendur bankans eiga ekki von á öðru en að rekstur hans verði í járnum í ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















