Viðskipti
| AFP
| 4.8.2009
| 7:16
Minna tap hjá Toyota en spáð var
Tap Toyota reyndist minna á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins heldur en spáð var og gera stjórnendur félagsins nú ráð fyrir að tapið verði minna í ár heldur en þeir spáðu fyrr á árinu. Toyota tapaði 77,82 milljörðum jena á tímabilinu apríl-júní en á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 353,66 milljörðum jena.
Er þetta mun betri afkoma heldur en á tímabilinu janúar til mars en þá nam tapið 765,8 milljörðum jena. Að meðaltali hafði því verið spáð að tap Toyota næmi um tvö hundruð milljörðum jena á síðasta ársfjórðungi.
Tekjur Toyota drógust saman um 38,3% en rekstrartapið nam 194,86 milljörðum jena.
Gera spár félagsins nú ráð fyrir því að tap ársins verði 450 milljarðar jena og rekstrartapið um 750 milljarðar jena. Munar 100 milljörðum jena frá fyrri spám en samkvæmt þeim var gert ráð fyrir því að tapið næmi 550 milljörðum jena í ár og rekstrartapið yrði 850 milljarðar jena.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















