Viðskipti
| AFP
| 5.8.2009
| 7:06
Hagnaður Adidas dróst samanum 93%
Reuters
Hagnaður þýska íþróttavöruframleiðandans Adidas dróst saman um 93% á öðrum ársfjórðungi. Nam hagnaður félagsins 9 milljónum evra en á öðrum ársfjórðungi í fyrra nam hagnaður félagsins 116 milljónum evra.
Þrátt fyrir að afkoman hafi versnað til muna þá er hún betri heldur en spáð hafði verið en að meðaltali hljóðaði spá sérfræðinga sem Dow Jones fréttaveitan leitaði til upp á 2,2 milljóna evra tap.
Sala Adidas dróst saman um 2,5% á ársfjórðungnum og nam 2,46 milljörðum evra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















