Viðskipti
| AFP
| 7.8.2009
| 6:52
Gríðarlegt tap Royal Bank of Scotland
Tap breska bankans Royal Bank of Scotland, sem bjargað var af stjórnvöldum, nam 1,042 milljörðum punda á fyrstu sex mánuðum rekstrarársins. Skýrist tapið að mestu af miklum afskriftum lána tengdum fjármálakreppunni.
Afkoma bankans er slæm líkt og við höfðum boðað, segir forstjóri RBS, Stephen Hester, í tilkynningu.
Afskriftir jukust um 409% og námu 7,5 milljörðum punda. Hann segir að þær verði áfram miklar hjá bankanum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















